Notkunarleiðbeiningar
Eitt hylki á dag eða eftir ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks. Við mælum með að taka Iron Lady fastandi að morgni með fullu glasi af vatni eða með mat ef það fer betur í magann. Fastandi gefur líkamanum best tækifæri til að taka járnið upp; best er að bíða með að borða og drekka kaffi eða te í 30–60 mínútur eftir inntöku.
Forðist að taka járn samhliða te, kaffi, gosdrykkjum eða mjólkurvörum þar sem það getur dregið úr járnuptöku. Forðist einnig að taka á sama tíma dags og bætiefni sem innihalda kalk (t.d. Create, Nurture, Embrace).
Fyrir hvern er Iron Lady?
Iron Lady er hugsuð til notkunar samhliða dagpökkum Venja fyrir konur með aukna járnþörf, meðal annars:
- konur með miklar tíðablæðingar
- íþróttakonur
- konur í brjóstagjöf eftir að blæðingar hefjast að nýju (Nurture inniheldur ekki járn)
- konur sem hafa fengið ráðleggingu frá heilbrigðisstarfsfólki um aukinn járnskammt
- konur sem á meðgöngu sem hafa fengið ráðleggingu frá heilbrigðisstarfsfólki um aukinn járnskammt
Ef þú ert ekki viss hvort þú þurfir auka járn, ráðfærðu þig við heilbrigðisstarfsfólk - blóðprufa segir til um járnstöðu þína á einfaldan hátt.
Hvað á ég að taka mörg hylki?
Eitt hylki á dag er rétti skammturinn fyrir flestar konur — 15 mg, sem nemur ráðlögðum dagskammti fyrir konur 18–50 ára samkvæmt NNR 2023. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt þér hærri skammt eftir blóðprufu má taka allt að 4 hylki á dag. Slíkur skammtur á alltaf að vera ákveðinn af lækni eða ljósmóður.
Hvað á ég að taka í langan tíma?
Það fer eftir ástæðunni. Ef þú tekur Iron Lady til að mæta daglegri járnþörf, til dæmis vegna mikilla tíðablæðinga eða íþróttaiðkunar, getur hún verið hluti af daglegri rútínu svo lengi sem þörfin er til staðar. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt þér hana eftir blóðprufu, fylgdu þeirra ráðleggingum — yfirleitt er gott að endurmeta járnstöðuna með annarri blóðprufu eftir 3–6 mánuði.
Notkun samhliða vítamínpökkum frá Venja
Sumar konur hafa þó hærri járnþörf en almennt gildir og gætu því þurft að auka inntöku á járni samhliða sinni Venju, til dæmis vegna mikilla tíðablæðinga, íþróttaiðkunar, eða eftir mat heilbrigðisstarfsfólks á járnstöðu með blóðprufu.
Eftir fæðingu er mjög persónubundið hvenær blæðingar hefjast að nýju — það getur verið hvenær sem er frá nokkrum vikum upp í tvö ár. Nurture inniheldur því ekki járn. Þegar blæðingar hefjast að nýju eykst járnþörfin og þá er Iron Lady hugsuð sem viðbót við Nurture.
Að lokum er rétt að nefna að líkaminn þarf fleiri næringarefni en bara járn til að mynda rauð blóðkorn, fólat og B12 gegna líka mikilvægu hlutverki. Þess vegna inniheldur hver Venja- dagpakki fólat og B12 í því magni sem hentar viðkomandi lífsskeiði. Iron Lady er hönnuð sem viðbót við þessa heild, en ekki ein og sér.
Iron Lady inniheldur 15 mg af járni, sem nemur 100% af ráðlögðum dagskammti fyrir konur á aldrinum 18–50 ára samkvæmt NNR 2023. Skammturinn er valinn með það tvennt í huga: að fara ekki umfram ráðlagðan dagskammt og að hægt sé að taka Iron Lady samhliða öðrum dagpökkum. Konur sem hafa fengið ráðleggingu frá heilbrigðisstarfsfólki um stærri skammt geta tekið allt að 4 hylki á dag.
Hvernig passar Iron Lady við dagpakkann minn?
| Dagpakkinn þinn | Járn í dagpakka | Samtals járn með Iron Lady |
|---|---|---|
| Essential & Support | 6,0 mg | 21,0 mg |
| Create | 15,0 mg | 30 mg |
| Nurture & Embrace | 0,0 mg | 15,0 mg |
| Rise & Erupt | 6,0 mg | 15,0 mg |
Skammtur
Allar samsetningar eru vel innan efri marka daglegra skammtaviðmiða með inntöku á 1 hylki á dag, það er ekki mælt með því að taka meira en 60 mg á dag. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt 3 eða fleiri hylki á dag samhliða Create, getur samanlögð inntaka farið yfir þolanleg efri mörk. Slíkur skammtur á að vera ákveðinn í samráði við lækni eða ljósmóður þar sem járn getur hlaðist upp í líkamanum.
Skoða vörusíðu
Af hverju fara sumar járntöflur verr í maga en aðrar?
Margar konur hætta á járni vegna magaóþæginda. Hér útskýrum við af hverju járnform skiptir máli, hvernig upptaka virkar og hvort...
Járnskortur hjá konum: Einkenni, áhættuþættir og hvenær ástæða er til að skoða járnið
Þreyta, slappleiki, miklar tíðablæðingar eða óútskýrð orkuleysi? Hér förum við yfir helstu einkenni járnskorts, hvaða konur eru í aukinni áhættu...
Af hverju fá íslenskar konur aðeins 59% af ráðlögðu járni úr fæðunni?
Landskönnun sýnir að konur á barneignaraldri fá að meðaltali aðeins 59% af ráðlögðum dagskammti járns úr fæðu. Hvað skýrir það?









