Refund policy

Skilaréttur 

  1. Viðskiptavinur hefur almennan 14 daga skilarétt á vöru sem hefur verið keypt í vefverslun Venju og byrjar fresturinn að líða frá þeim degi sem viðskiptavinur veitir vöru viðtöku á afhendingarstað Dropp 

  1. Vöruskil skulu fara í gegnum vöruskilasíðu Dropp. Vöru telst skilað þegar hún kemst í vörslur Venju og fer í kjölfarið fram mat á því hvort eiginleikar vörunnar séu með þeim hætti að skilyrði fyrir endurgreiðslu teljist uppfyllt. 

  1. Venja leggur mikið upp úr öryggi viðskiptavina og gæði þeirrar vöru sem seld er og er því aðeins, af öryggis- og heilbrigðisástæðum, tekið við vörum sem eru í óopnuðum umbúðum og í sama ásigkomulagi og þær voru við afhendingu.  

  1. Við mat á því hvort eiginleikar vörunnar séu með þeim hætti  skilyrði fyrir endurgreiðslu teljist uppfyllt mun Venja m.a. líta til þess hvort: 

  1. innsigli vörunnar hafi verið rofið; 

  1. umbúðir hafi skemmst; eða  

  1. gæði vörunnar hafi verið skert með öðrum hætti.  

  1. Ef til endurgreiðslu kemur fer endurgreiðsla fram með sama hætti og viðskiptavinur greiddi fyrir vöruna innan 14 daga frá kröfu um endurgreiðslu, en viðskiptavinur hefur einnig val um að fá inneign að andvirði sömu fjárhæðar í vefverslun Venju. 

  1. Kostnaður við endursendingu þegar vöru er skilað er á ábyrgð viðskiptavinar nema varan sé gölluð.  

  1. Vara telst gölluð þegar hún er ekki í samræmi við lýsingar sem Venja hefur gefið eða þær kröfur sem neytandi mátti vænta af sambærilegri vöru. Þegar vara er gölluð býðst viðskiptavini að fá vöruskipti, endurgreiðslu eða inneign í vefverslun Venju. 

Venja leitast við því eftir fremsta megni að ferli vöruskila taki sem skjótastan tíma og mun Venja leitast við að koma til móts við þarfir viðskiptavinar með sanngirni að leiðarljósi. 

 Viðtökudráttur viðskiptavina 

  1. Ef viðskiptavinur veitir vöru ekki viðtöku á afhendingarstað Dropp þrátt fyrir tilkynningu um að honum standi til boða að sækja vöruna á tilteknu 7 daga tímabili á afhendingarstað endursendir Dropp vöruna til Venju. Viðskiptavinur hefur eftir  Venja veitir vörunni viðtöku að nýju 30 daga til að: 

  1. sækja pöntun á starfsstöð Venju; eða  

  1. óska þess að varan sé send á afhendingarstað Dropp að nýju gegn greiðslu sendingarkostnaðar. 

  1. Líði 30 dagar eftir að vara er endursend til Venju f Dropp vegna þess að viðskiptavinur veitti vöru ekki viðtöku og hann hefur hvorki sótt vöru á starfsstöð Venju né óskað eftir að varan sé send að nýju á afhendingarstað Dropp er litið svo á að viðskiptavinur hafi hætt við kaupin. Viðskiptavinur getur þá óskað eftir endurgreiðslu  frádregnum: 

  1. kostnaði sem Venja þurfti að bera í tengslum við viðtökudrátt viðskiptavinar; og  

  1. geymslukostnaði sem nemur 10% söluverði vörunnar. 

  1. Réttur til endurgreiðslu í samræmi við þessa grein 8.3 fellur niður séu eiginleikar vörunnar með þeim hætti að ekki sé hægt að taka hana í vörubirgðir vefverslunarinnar að nýju að liðnum 30 dögum, t.d. vegna þess að varan úreldist fljótt. Í slíkum tilvikum er réttur viðskiptavinar til að falla frá kaupum ekki fyrir hendi.